


Áætluð vinna og kostnaður við uppsetningu á sumarhúsi:
Stólpar / hólkar – áætlun
Stærð húss
Reiknað út frá vali
Samantekt
Greiðsluáætlun
Við pöntun. Reiknað af grunnverði og aukabúnaði frá verksmiðju.
Eftir ca. 8 vikur. Kaupandi fær sendar myndir og myndband til samþykktar áður en greitt er.
Greitt þegar hús leggur af stað frá verksmiðju til Íslands.
Greitt við tollafgreiðslu þegar húsið kemur til landsins.
Athugið: Flutningur innanlands (frá höfn að lóð) er ekki innifalinn og greiðist sérstaklega. Áætlaður kostnaður við íslenska verktaka og stólpagrunn greiðist beint til þeirra skv. samkomulagi.
Excel-skjal opnast í Excel, Google Sheets eða Numbers.
Staðalbúnaður og tæknilýsing
1. Burðarvirki:
Gólfgrind er smíðuð úr galvaníseruðu stáli sem tryggir stöðugleika hússins. Allt burðarvirki í veggjum, lofti og þaki er smíðað úr þurrkuðum, sænskum gæðavið (C24).
2. Rakavörn og einangrun:
Gólf, veggir og þak eru fullbúin með öflugum raka-, gufu- og vindvarnarlögum til að verjast raka og tryggja góð loftgæði.
3. Botnvörn:
Botninn undir húsinu er klæddur með galvaníseruðu stáli til að verja húsið gegn veðrun og nagdýrum.
4. Einangrun og þykkt veggja:
Öflug einangrun um allt hús (EPS í gólfi og glerull í þaki). Ytri veggir eru 25cm þykkir, einangraðir með glerull og er U-Gildi húss 0.18 skv. íslenskum byggingarreglugerðum.
5. Þakfrágangur:
Þakið er klætt með vönduðu bárustáli eða stálþaki með standsaumi (smelluþaki). Fullbúnir þakkantar ásamt þakrennum og niðurföllum úr plasti (PVC) fylgja.
6. Gluggar:
Góðir þrefaldir PVC gluggar (6-hólfa kerfi) með filmu á annarri hlið. Gluggarnir eru búnir innbyggðum loftræstiopum til að tryggja stöðuga og góða hringrás lofts.
7. Útihurðir:
Svalahurðir og aðalútidyrahurð eru ýmist úr PVC eða einangruðu stáli, búnar öruggri tvöfaldri læsingu til að verjast innbrotum og álagi. Hægt að fá þrefalt lásakerfi.
8. Hurðir og gluggakistur:
Snyrtilegur frágangur innanhúss með fallegum skandinavískum listum kringum hurðir og glugga, auk gluggakista úr PVC. Innidyrahurðir eru framleiddar úr MDF viði með stillanlegum körmum (eða rennihurðir þar sem það á við).
9. Gólfefni:
Gólfin eru klædd með sérstaklega slitsterkum gólfdúk (PVC) sem þolir mikið álag, ásamt frágengnum gólflistum.
10. Veggir og loft:
Innveggir og loft eru klædd og frágengin með ljósum, skandinavískum kerfisplötum sem gefa rýminu bjart og nútímalegt yfirbragð.
11. Útveggjaklæðning:
Ytra byrði hússins er klætt með hvítri, viðhaldsfrírri plastklæðningu (VOX SV-05 siding panel). Þessi klæðning myndi henta ef það er bætt við bárujárni eða álklæðningu utan á húsið.
12. Lagnir og rafmagn:
Fullbúið og frágengið kerfi fyrir vatn, frárennsli, rafmagn og loftræstingu. Allar rafmagnsinnstungur, tenglar og rofar eru uppsett og tilbúin til notkunar.
13. Rafmagnshitun:
Húsið er forvírað og tilbúið fyrir uppsetningu á rafmagnsofnum. Rafmagnshitakútur (bojler) er einnig innifalinn.
14. Baðherbergi og þvottaaðstaða:
Baðherbergið er fullbúið með gólfstandandi salerni, handlaug með neðriskáp og vönduðum sturtuklefa frá Sanplast (fáanlegur í 80×80 cm eða 90×90 cm eftir gerð hússins). Einnig eru fullfrágengnar lagnir og tengingar fyrir þvottavél.
15. Rafmagnstafla:
Fullbúin og frágengin rafmagnstafla ásamt öryggjum.
16. Inntök og útivarnir:
Öll inntök (vatn, frárennsli og rafmagn) eru staðsett undir gólfi, ásamt útbúnaði til að tappa af vatnskerfinu ef loka á húsinu yfir kaldasta vetrartímann.
17. Loftræsting:
Vélræn loftræsting (vifta) bæði á baðherbergi og í eldhúsi.
18. Lýsing:
Innbyggð LED lýsing innanhúss ásamt tilbúinni útilýsingu.
19. Hitakútur:
10 lítra rafmagnshitakútur fyrir heitt neysluvatn fylgir sem staðalbúnaður. (Hægt er að uppfæra í stærri rafmagnshitakút eða sníða lagnir að hefðbundinni hitaveitu eftir þörfum kaupanda).
20. Eldhúsinnrétting er hvít:
Eldhúsið er útbúið með hagnýtum efri og neðri skápum. Neðri skáparnir eru hannaðir með rými og tengingum fyrir uppþvottavél, og í efri skápunum er frágengið pláss fyrir örbylgjuofn til að hámarka nýtingu rýmisins.
21. Eldhúsvaskur:
Stálvaskur ásamt blöndunartæki fylgir í eldhúsi.
22. Helluborð:
Innbyggt, tveggja hellu rafmagnshalluborð tilbúið til notkunar.
23. Gufugleypir:
Gufugleypir (vifta) sem er snyrtilega felldur inn í efri eldhússkápa.
Engar áhyggjur af viðhaldi í áratugi!
Húsin okkar koma með vandaðri VOX-klæðningu sem krefst ekki málningar eða viðhalds.
Þú færð 10 ára formlega verksmiðjuábyrgð á efninu en klæðningin er hönnuð til að standast veður og vinda næstu 10 til 30 árin án þess að missa gæði sín eða útlit.
Skoðaðu úrvalið hér fyrir neðan og veldu þér þinn uppáhalds lit og áferð:
-
SO-01
Sedrviður -
SO-01
Sedrviður V Svart -
SO-01
Súkkulaðið eik -
SO-01
Súkkulaðið eik V-Svart -
SO-01
Grá eik -
SO-01
Grá eik V-Svart -
SO-01
Náttúruleg eik -
SO-01
Náttúruleg eik V-Svart -
SO-02
Sedrviður -
SO-02
Sedrviður V-Svart -
SO-02
Súkkulaðið eik -
SO-02
Súkkulaðið eik V-Svart -
SO-02
Grá eik -
SO-02
Grá eik V-Svart -
SO-02
Náttúruleg eik -
SO-02
Náttúruleg eik V-Svart -
SO-03
Sedrviður -
SO-03
Sedrviður V-Svart -
SO-03
Súkkulaðið eik -
SO-03
Grá eik -
SO-03
Grá eik V-Svart -
SO-03
Náttúruleg eik -
SO-03
Náttúruleg eik V-Svart
Solvo er hágæða þrívíddarklæðning frá VOX með raunverulegri viðaráferð. Klæðningin er 100% endurvinnanleg, viðhaldsfrí og þolir íslenskt veðurfar, frost og miklar hitasveiflur.


