
Sagan á bak við Listhús Arc
Leitin að nýjum og betri lausnum
Frá árinu 1993 hefur Baldvin starfað á breiðum grunni sem ráðgjafi, grafískur hönnuður og kerfisfræðingur. Í gegnum tíðina hefur hann rekið eigin auglýsingastofu og hugbúnaðarhús og unnið að fjölbreyttum verkefnum fyrir hundruð fyrirtækja – allt frá vörumerkjauppbyggingu, hönnun og markaðssetningu yfir í flóknar kerfislausnir.
Ferill hans hefur allt frá upphafi einkennst af margvíslegri hönnun og stöðugri leit að betri lausnum fyrir viðskiptavini. Drifkrafturinn hefur ávallt verið sá sami: hvernig hægt sé að gera hlutina skýrari, einfaldari og gagnlegri fyrir viðskiptavini.
Sú hugmyndafræði hefur fylgt honum í gegnum öll störf, hvort sem um ræðir hönnun, hugbúnaðarkerfi, vörumerkjaþróun eða rými. Með árunum þróaðist þessi nálgun einnig í átt að byggingarlist og rýmisgreiningu, þar sem samspil forma, efnis og ljóss varð sífellt stærri þáttur. Þar nýtist reynsla hans sem art director vel, með áherslu á skýra heildarsýn, jafnvægi í formi og að hver lausn hafi tilgang – bæði sjónrænan og hagnýtan.
Stærsta viðfangsefni samtímans
Með tímanum varð þessi leit að lausnum enn víðtækari. Baldvin fór að beina sjónum sínum að því hvernig hann gæti lagt sitt af mörkum við að takast á við eitt stærsta viðfangsefni samtímans: húsnæðismál.
Þar blasir við margþættur vandi – síhækkandi byggingakostnaður og flókið, langt byggingarferli, ásamt efnisvali sem tekur ekki nægilegt mið af heilsu, loftgæðum og heilbrigði. Mygluvandamál, sem oft má rekja beint til vankanta í hönnun og framkvæmd, eru víða til staðar. Þá skortir oft heildræna hugsun um hvernig fólk raunverulega lifir og líður í rýminu.
Á sama tíma virðist byggingariðnaðurinn gjarnan taka of hæg skref fram á við. Nýjungar í efnisvali og vinnuaðferðum skila sér seint inn á markaðinn hérlendis, þrátt fyrir augljósa þörf fyrir úrbætur og betri vinnubrögð.
Sýnin að baki Listhúsum
Framtíðarsýnin varð því afar skýr: það varð að finna betri leið. Markmiðið var að þróa lausnir sem eru hagkvæmari í heild sinni en jafnframt mun vandaðri; lausnir byggðar á betra efnisvali með ríka áherslu á framúrskarandi loftgæði, heilbrigði og gæði. Undirstaðan varð að vera djúpur skilningur á því hvernig rými eiga að styðja við daglegt líf fólks – en ekki vinna gegn því.
Út frá þessari sýn og þessum drifkrafti varð Listhús til.
Við tökum byggingarlistina alvarlega
-Byggingariðnaðurinn þarfnast nýrrar hugsunar!
Þegar við lögðum af stað með Listhús var það fyrst og fremst vegna þess að byggingariðnaðurinn á Íslandi þarf á nýjum drifkrafti að halda. Um langt skeið hefur ríkt ákveðin stöðnun í greininni, þar sem byggingartími er gjarnan langur, óvissan mikil og kostnaður hár, á sama tíma og víða er enn stuðst við aðferðir og efni sem mæta engan veginn kröfum nútímans um gæði, loftgæði og heilbrigði.
Við höfum séð þessi vandamál ítrekað, bæði í fjölmiðlum og hjá viðskiptavinum okkar, og afleiðingarnar liggja víða fyrir. Í rannsóknum okkar á markaðnum kom í ljós að yfir hundrað opinberar byggingar á Íslandi hafa glímt við mygluvandamál og skort á loftgæðum, sem hefur leitt til umfangsmikilla og kostnaðarsamra viðgerða vegna raka og skemmda. Samhliða þessu hefur myndast menning þar sem skammtímasjónarmið ráða oft för og hraði og kostnaður fá forgang fram yfir gæði, með þeim afleiðingum að það er fólkið sem býr eða starfar í húsunum sem ber áhættuna til lengri tíma litið.
Rými hönnuð í kringum fólk
Við vildum fara aðra leið, þar sem byggingar snúast ekki eingöngu um framkvæmdina sjálfa heldur um það að móta umgjörð utan um mannlegt líf. Hjá Listhúsum er sú grundvallarhugsun leiðarljós að hagsmunir þeirra sem nota rýmið eigi alltaf að vega þyngst.
Við nálgumst byggingar með sama hugarfari og hönnun á vönduðu hugbúnaðarkerfi, þar sem notandinn er í forgrunni og hver einasta ákvörðun hefur skýran tilgang. Hvort sem unnið er með snjalltimbur, forsmíðaðar einingar eða gróðurhús þurfa form, efni og birta að vinna saman á eðlilegan hátt og styðja við daglegt líf; þess vegna gerum við skýra kröfu um vandað efnisval, faglega verkferla og framúrskarandi loftgæði. Markmiðið er að skila endingargóðum rýmum sem bæta raunverulega lífsgæði þeirra sem þau nota.
Leiðin að betri byggingum
Til að ná þessum markmiðum beindum við sjónum okkar að þróun í nágrannalöndum, þar sem framfarir hafa verið hraðar og byggingaraðferðir þróast í takt við kröfur samtímans. Þar lögðum við áherslu á lausnir sem draga úr áhættu, einkum með forsmíði í lokuðu og þurru verksmiðjuumhverfi sem tryggir nákvæmni og lágmarkar hættu á rakaskemmdum, á sama tíma og það veitir betri yfirsýn yfir bæði tíma og kostnað. Við leggjum ríka áherslu á val á samstarfsaðilum og vinnum eingöngu með aðilum sem deila okkar sýn á gæði, efni og vinnubrögð.
Gróðurhús – rými sem stækkar heimilið
Áhugi Baldvins á gróðurhúsum kviknaði út frá pælingum um rými og upplifun, þar sem hann vildi skilja betur hvernig slíkt rými nýtist í íslenskum aðstæðum. Áður en innflutningur hófst setti hann upp eitt gróðurhús til eigin nota á Akureyri og prófaði það í raunverulegum aðstæðum með það að markmiði að sjá hvernig það myndi nýtast í daglegu lífi.
Niðurstaðan var skýr: gróðurhús reyndust vera mun meira en einfaldur ræktunarstaður. Þau eru skjólgóð og björt rými sem nýtast stóran hluta ársins, þar sem hægt er að njóta dagsbirtu og kyrrðar jafnvel þegar veður er óhagstætt utan dyra, og verða þannig eðlileg framlenging á heimilinu. Á sama tíma bæta þau við fermetrum á hagkvæman hátt og færa fólk nær náttúrunni allt árið. Við lok árs 2026 gerum við ráð fyrir að hafa reist vel á annað hundrað slíkra húsa víðs vegar um landið, sem sýnir hvernig þessi nálgun hefur fest sig í sessi og hvernig hlutverk gróðurhúsa hefur þróast á Íslandi.
Kontio í Finnlandi – náttúrulegt sterkt massíft -snjalltimbur
Fyrir forsmíðuð sumarhús og einbýlishús teljum við snjalltimbur vera eina sterkustu lausn sem völ er á og því höfum við valið að starfa með finnska fyrirtækinu Kontio sem nýtir hægvaxta norðlæga furu í framleiðslu sinni. Efnið er sterkt, andar á náttúrulegan hátt, jafnar rakastig og dregur þannig úr líkum á myglumyndun sem skiptir sköpum þegar kemur að loftgæðum og heilnæmi í rýmum þar sem fólk dvelur daglega. Lausnir Kontio byggja á áratuga reynslu og uppfylla strangar kröfur, ekki aðeins í íbúðarhúsnæði heldur einnig í skólum og leikskólum þar sem gerðar eru miklar kröfur um umhverfi og líðan. Kontio er stærsta fyrirtæki heims sem forsmíðar hús og framleiða þeir um 2000 hús árlega.
Stærri byggingar
Þegar kemur að fjölbýlishúsum, hótelum og opinberum byggingum snúast stærstu áskoranirnar yfirleitt um framkvæmdatíma, mannafla, fjármagnsbindingu og áhrif veðurfars á framvindu verka. Með forsmíðuðum lausnum er hægt að færa stærstan hluta framleiðslunnar inn í verksmiðjuumhverfi, loka húsum hraðar og ná mun betri stjórn á bæði tíma og kostnaði.
Forsmíðaðar byggingareiningar, hvort sem um er að ræða timburlausnir eða aðrar kerfislausnir, henta sérstaklega vel í stærri verkefnum þar sem skipulag, hraði og fyrirsjáanleiki skipta sköpum. Með þessu vinnulagi styttist byggingartími verulega, tafir minnka og frágangur verður stöðugri en í hefðbundnum byggingaraðferðum. Á sama tíma skapast svigrúm til að þróa verkefni hraðar frá fyrstu hugmynd til afhendingar.
Sem viðmið má gera ráð fyrir að byggingarkostnaður fyrir fullfrágengin mannvirki með forsmíðuðum lausnum sé almennt hagkvæmari þegar tekið er tillit til heildarkostnaðar, þar með talið framkvæmdatíma, mannafla og áhættu. Þó að upphaflegt einingaverð geti verið sambærilegt eða hærra, skilar heildarverkefnið sér oft betur þegar allt er tekið saman — sérstaklega þar sem hraðari framvinda getur haft veruleg áhrif á heildarárangur verkefna.
Í stærri verkefnum felst hlutverk Listhúss Arc fyrst og fremst í að tengja saman rétta aðila og styðja við þróun verkefna frá fyrstu stigum. Verkefni eru unnin í beinu samstarfi milli verkkaupa og framleiðenda, þar sem samskipti fara fram án milliliða. Engin þóknun eða álagning bætist við af hálfu Listhúss Arc í slíkum verkefnum.
Reynslan sýnir að forsmíðaðar lausnir draga úr óvissu, stytta framkvæmdatíma og skapa betri forsendur fyrir markvissa uppbyggingu. Við hittum reglulega verktaka, fjárfesta og lóðareigendur sem vilja skoða raunhæfar leiðir til að þróa verkefni áfram og bjóðum þeim að vinna slíkar hugmyndir áfram með okkur án aukakostnaðar.

Á myndinni má sjá þá félaga, Baldvin og Sigurð, þegar þeir sóttu námskeið sitt fyrsta námskeið hjá Kontio. Hér standa þeir við björninn, sem er sterkt tákn fyrir óspillta náttúru og víðáttumikið skógarlendi Norður-Finnlands. Það er einmitt af þeirri ástæðu sem Listhús Arc notar björninn í merki sínu.

Hér má sjá Sigurð smið rýna í ítarlegar framleiðslu- og verkfræðiteikningar sem fylgja öllum húsum frá Kontio. Slík gögn innihalda nákvæmar upplýsingar um burðarvirki, tengingar og frágang. Fyrir arkitekta og byggingafræðinga á Íslandi nýtast teikningar finnskra timburhúsa sem traustur grunnur í samþykktarferli og við gerð aðal- og séruppdrátta.

Öruggur flutningur frá verksmiðju og beint á byggingarstað er lykilatriði í okkar þjónustu. Til að tryggja hnökralaust ferli erum við í nánu samstarfi við Eimskip, sem sér um flutninginn alla leið – frá dyrum framleiðanda að þínum afhendingarstað. Sendingin er að sjálfsögðu fulltryggð á hverju einasta skrefi ferðarinnar, sem veitir kaupendum fullkomna hugarró á meðan beðið er eftir vörum frá okkur.

Hér má sjá Baldvin og Inger, eigendur Listhús Arc, ásamt Jesper Vilstrup, forstjóra Juliana. Þau sóttu sérsniðið námskeið allra endursölu aðila í Evrópu um gróðurhúsin Juliana og Halls og áttu þar jafnframt frábæran fund með starfsfólki og forstjóranum. Þessi beinu og góðu samskipti við framleiðandann tryggja að við hjá Listhúsum þekkjum vörurnar okkar betur og getum veitt viðskiptavinum okkar bestu mögulegu ráðgjöf þegar kemur að því að velja rými sem auka lífsgæði og samverustundir.

Þessi mynd er tekin á árlegri garða- og blómahátíðinni í Tívolí (Tivoli Have- og Blomsterfestival), þar sem Juliana sýnir ár hvert mörg af sínum fallegustu gróðurhúsum. Þar er lifandi blómamarkaður í garðinum og Juliana í lykilhlutverki á sýningunni. Við heimsóttum svæðið til að sækja innblástur og tryggja að við séum ávallt með nýjustu þekkingu þegar kemur að vönduðum lausnum fyrir íslenska garða.

Hér má sjá Juliu Girard, framkvæmdastjóra Lams í Frakklandi, ásamt Inger og Baldvin í skoðunarferð um framleiðslu og vöruhús fyrirtækisins. Í heimsókninni áttu þau mikilvæga fundi með verkfræðingum Lams þar sem farið var nákvæmlega yfir þær styrkingar sem þarf að útfæra í framleiðslunni sérstaklega fyrir íslenskan markað. Kröfurnar eru strangar, enda býður íslensk veðrátta upp á mikinn vind, snjóþunga, frost, sól og rigningu úr öllum áttum – stundum allt á sama degi. Þessi sameiginlega rýnivinna tryggir að öll Lams gróðurhús sem flutt eru til Íslands koma sérstyrkt frá verksmiðju til að standast þetta mikla álag.

Sími: 888 0606
info@listhus.is
Faxafeni, 2 hæð.
105 Reykjavík

Glæsileg garðhús frá Juliana
& gróðurhús frá Halls
Sjá hér: www.uxhome.is



