Sumarbústaðir

& Gróðurhús

Skoða Alpina einingahús

Vönduð dönsk

Gæða garðhús

Skoða garðhús
Lean On

GRÓÐURHÚS

Skoða LAMS gróðurhús
Vistvæn & sterk
EINBÝLISHÚS
Skoða einbýlishús
Glass House 2

EINBÝLI & SUMARHÚS

Skoða sumarhús
Halls gæða

GRÓÐURHÚS

Skoða gróðurhús
Grænar lausnir 🌿
STÆRRI BYGGINGAR
Skoða vistvæna byggð
Vistvæn & sterk
EINBÝLISHÚS
Skoða einbýlishús
Einn fremsti arkitekt Finnlands
ASKO LAX
Í SAMSTARFI VIÐ LISTHÚS ARC

Einingahús

Fjárfestu í frítímanum – ekki í viðhaldi!

Glæsileg einingahús með vandaðri og viðhaldsfrírri klæðningu að utan. Þú þarft ekki lengur að eyða dýrmætum frídögum í að skrapa og mála útveggi. Með okkar einingahúsum mætirðu einfaldlega á svæðið, slakar á og nýtur lífsins frá fyrsta degi. Þú átt skilið að hvílast í fríinu þínu!

Þú færð hús sem er ekki bara fallegt að sjá, heldur byggt til að endast:

  • Fljótleg uppsetning: Tekur aðeins 1–2 daga í uppsetningu, háð stærð og fjölda eininga.
  • Hannað fyrir íslenskan vetur: 25 cm þykkir útveggir með yfirburða einangrun (U-gildi 0.18) og þrefalt gler í gluggum halda hitanum inni og lækka orkukostnað.
  • Sterkt og viðhaldsfrítt: Stálgrind í botni og allt burðarvirki úr sænskum gæðavið (C24). Viðhaldsfrí og slitsterk ytri klæðning þar sem hægt er að velja um mikið úrval af áferðum, til dæmis fallegt og hlýlegt viðarútlit.
Image

  • Húsið kemur með uppsettu eldhúsi, fullbúnu baðherbergi með sturtuklefa og slitsterkum gólfefnum.
  • Húsin koma með innsettu rafmagni og pípulögnum og ódýrast er að nota varmadælu.
  • Öll inntök fyrir vatn, rafmagn og frárennsli eru frágengin og tilbúin undir gólfi.

Image

Alpina bústaður

2 einingar - 3ja herbergja, stærð 59 - 69

Image

Oak bústaður

1 eining - 2ja herbergja, White Oak 36m² -48m²

Mikið úrval gróðurhúsa!

Image

Garðhús frá Juliana

Yfir 30 tegundir og stærðir af garðhúsum frá Juliana

Image

Gróðurhús frá Halls

Yfir 20 tegundir og stærðir af gróðurhúsum fyrir blómin

Image

Fylgihlutir / Gróðurhús

Mikið úrval af allskyns fylgihlutum í gróðurhús okkar

Image

Viðarkamínur

Viðarkamínur í gróðurhúsið og heimilið

Image

Luxia frá Lams

Mikið úrval af "Lean on" gróðurhúsum - 14 litir

Image

Stærri gróðurhús

Supra frá Lams eru sérsmíðuð gróðurhús í 14 litum

Snjallbitahús frá Kontio

Image

Einbýlishús

Yfir 100 tegundir og útfærslur af einbýlishúsum frá Kontio

Image

Sumarbústaðir

Yfir 40 tegundir og útfærslur af sumarhúsum frá Kontio

Image

Byggingaraðilar

Lausnir fyrir verktaka sem vilja vinna hraðar, öruggar og í takt við nýjar kröfur

image

Tryggðu þér öryggi, gæði og endingu!

Listhús leggur mikla áherslu á að tryggja að húsin okkar standist íslenskar aðstæður og veðurskilyrði. Þegar þú hefur valið form og útlit hússins metum við vandlega staðsetningu þess og skoðum jarðskjálftavirkni á svæðinu. Ef saga jarðskjálfta á svæðinu gefur tilefni til, leggjum við til viðeigandi styrkingar á burðargrind hússins til að auka öryggi og endingu þess. Þessi vinnubrögð tryggja að húsin frá Listhús séu ekki aðeins hönnuð til að standast íslenskar aðstæður, heldur einnig byggð með það fyrir augum að endast í áratugi og með góðu viðhaldi jafnvel árhundruði. Með því að velja Listhús Arc til samstarfs færðu hús sem er vandlega hannað og byggt með tilliti til allra þátta sem tryggja öryggi, gæði og góða endingu hússins.

Íslensk lög og reglugerðir!

Öll hús sem við bjóðum upp á eru hönnuð og byggð í samræmi við íslenskar byggingaraðferðir og uppfylla allar kröfur íslenskra laga og reglugerða. Við fylgjum ströngustu stöðlum til að tryggja öryggi, gæði og endingu mannvirkja okkar, í samræmi við gildandi byggingarreglugerð nr. 112/2012

Þetta felur í sér að við notum viðurkennd byggingarefni og aðferðir sem henta íslenskum aðstæðum og veðurskilyrðum. Við leggjum áherslu á að fylgja sjálfbærum og vistvænum byggingaraðferðum, í takt við nýjustu þróun í íslenskum og Evrópskum byggingariðnaði. Öll efni í húsum okkar er CE merkt. Sjá einnig vottanir:

10 ára ábyrgð!

Kontio veitir 10 ára ábyrgð á öllum viði í útveggjum húsa sinna. Þessi ábyrgð nær yfir galla í efni og framleiðslu sem kunna að koma fram í viðarhlutum útveggja á ábyrgðartímanum. Þetta tryggir að viðurinn haldi gæðum sínum og endingu í íslenskum veðurskilyrðum. Ábyrgðin felur í sér að Kontio mun, eftir þörfum, gera við eða skipta út gölluðum viðarhlutum án kostnaðar fyrir eiganda, að því gefnu að eðlilegt viðhald hafi verið framkvæmt samkvæmt leiðbeiningum framleiðanda.

Image

Kontio rekur eigin skógarrækt og ræktar þar Arctic Pine tré, hægvaxta furu sem er þekkt fyrir styrk sinn og náttúrulegan einangrunareiginleika.

Arctic Pine (arktísk fura) er sérstök tegund furu sem vex á köldum norðurslóðum, aðallega í Finnlandi og öðrum norðlægum löndum. Vegna harðra veðurskilyrða á þessum svæðum þróar Arctic Pine hægari vöxt, sem gerir viðinn einstaklega þéttan og sterkan. Þessi hægfara vöxtur eykur þéttleika viðarins, sem veitir honum framúrskarandi styrk, endingu og veðurþol, viðurinn hleypir ekki eins inn í sig vatni eins og hraðvaxta viður sem vex á hlýrri slóðum, þetta er eiginleiki sem eru lykilatriði í byggingu traustra og endingargóðra timburhúsa. Öll hús Kontio eru byggð með Artic Piine furu.

Image
Image

Juliana gróðurhús – Dönsk gæðasmíði

Juliana gróðurhús eru hönnuð og framleidd í Danmörku af einum elsta og virtasta framleiðanda Evrópu. Með yfir 60 ára reynslu hefur Juliana skapað sér traust orðspor fyrir hágæða gróðurhús sem sameina fallega norræna hönnun og endingu sem stenst veðurskilyrði á norðurslóðum.

Helstu kostir Juliana gróðurhúsa:

  • Mikið úrval fylgihluta sem auðvelt er að festa í burðarvirki hússins
  • Framleidd úr ryðfríu áli með hertu gleri eða polycarbonate-plötum
  • Glæsileg og traust hönnun sem stenst íslenskt veðurfar
  • Henta jafnt til ræktunar sem og sem samverurými eða garðstofa
  • Fjölbreytt stærðarúrval og margir möguleikar á sérsniðnum lausnum
  • Framleiðsla samkvæmt ströngustu evrópskum stöðlum – með allt að 12 ára ábyrgð

Listhús Arc er formlegur umboðsaðili Juliana á Íslandi og sér um ráðgjöf, sölu og uppsetningu. Við aðlögum gróðurhúsin íslenskum aðstæðum og tryggjum endingargóða og fallega lausn til ræktunar eða notkunar allt árið um kring.

Image

Baldvin Baldvinsson

Sala & ráðgjöf
Sími 888 0606
baldvin@listhus.is

"Ég er mikið á ferðinni og mæli því með að viðskiptavinir bóki tíma áður en þið komið í Faxafenið 📞"

Sendu fyrirspurn

Við hjá Listhús Arc bjóðum þér að hitta söluráðgjafa og fara yfir verkefnið þitt á faglegan og persónulegan hátt.

Image

Sýningahús Listhús Arc – Faxafen 10, 2. hæð

Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin í heimsókn til okkar – þar sem þið getið skoðað uppsett sýningahús og fengið innblástur fyrir ykkar framtíðarverkefni.

Alltaf heitt á könnunni – við tökum vel á móti ykkur í notalegu umhverfi.

Image

Sími: 888 0606
info@listhus.is
Faxafeni, 2 hæð.
105 Reykjavík

Image

Glæsileg garðhús frá Juliana
&
gróðurhús frá Halls

Sjá hér: www.uxhome.is

Image